|
|
01.01.2012 11:07:15 / Helga Dögg
Horfum um öxl me ðskilningi, fram á við í rtú og íkringum okkur með kærleika. Allt gekk áfallalaust fyrir sig á mínum vígstöðvum umáramót, fjölskyndan eyddi áramótunum saman og naut að venju. Skrifari tekur nú ótímabundið hlé frá skrifum á síðuna,bið trygga lesendur velvirðingar á því. Gleðilegt ár, njótið þess sem koma skal með jákvæðuhugarfari. Góð kveðja, Helga Dögg />
»
27.12.2011 13:06:13 / Helga Dögg
Í hvert sinn sem eitthvað gott hendir þig láttu eitthvað gott henda einhvern annan
Jólahátíðin hálfnuð eða hér um bil. Jólin liðu á hefðbundinn hátt. Rjúpurnar brugðust ekki frekar en endranær. Hangikjetið var alveg meirirháttar, það besta sem bróðir minn hefur smakkað. Tvíreykt læri og soðið, afar bragðgott. Spilamennska setti svip sinn á hátíðina eins og venjulega. Veðurfarið gott ef undnaskildir eru tveir tímar á aðfangadag á meðan lægðin gekk yfir. Á meðan veðrið er stillt þarf enginn að kvarta.
Veðurhamur, reyndar fellibylurinn Dagmar, setti svip sinn á jólahald í Skandinavíu og verst í Noregi og Svíþjóð. Miklar eyðileggingar þar. Veðurguðunum var ekki skemmt um hátíðina það er ljóst, þeir í essinu sínu. Hér heima gekk allt friðsamlega fram. Innbrot í húsnæði Mæðrastryksnefndar, hversu lágt geta þjófar nú lagst, spyr bara. Björgunarsveitir kallaðar út, fólk lét viðvörun sem vind um eyru þjóta. Sumir eru klárir þegar kemur að ökuhæfni í vitlausu veðri. Hvað gerist fyrir þessa kláru kappa, björgunarsveitarmenn mæta á staðinn tilbúnir að nóttu sem degi að aðstoða kjánana.
Áramót framundan og vart þarf að minna fólk á hvar það kaupir flugelda ætli það að gera það. Björgunarsveitir landsins þurfa á fjármagninu að halda og nokkuð ljós Örn Árnason mætir ekki í óveðri að bjarga neinum þrátt fyrir að hafa strærstu bombur landsins til sölu. Forðumst slíka sölumenn og látum Landsbjargarfólkið njóta þess.
Kveð...latur skrifari...Helga Dögg
»
24.12.2011 11:05:23 / Helga Dögg
Kæri lesandi, nær og fjær til sjávar og sveita, sendi þér og fjölskyldu þinni hugheilarjólaóskir með von um ángjuríka hátíð. Það er von mín að veðurspáin höfði til þeirra sem þurfa að hlusta. Spáð er arfavitlausu veðri um allt land. Látið vera að ferðast sé þess ekki þörf, njótið heldur dagsins þar sem þið eru í stað þess að ógna öryggi ykkar. Sjómenn sem ekki komast í land í tæka tíð eyða sínum jólum á sjó. Eins og sagt er, gera það besta úr því miðað við aðstæður. Jólahátíðin með öllum sínum hátíðleik gengur í garð eftir nokkrar klst. Börnin kætast og eiga mörg þeirra erfitt eins og flestallir hafa upplifað sem eiga börn. Vona að Kertasnýkir hafi fært öllum eitthvað í skóinn. Jólakveðja, Helga Dögg
»
21.12.2011 12:32:02 / Helga Dögg
Kærleikurinn horfir framhjá útlitinu en lítur á hjartalagið
Það voru engin smá viðbrögð hjá íbúum Norður-Kóreu þegar höfðingi þeirra dó. Frekar ýkt ef svo má að orði komast. Sæi Íslendinga syrgja núverandi forseti á þennan hátt, ekki glæta. Menn myndu án efa sakna Vigdísar Finnbogadóttur meira en Ólafs Ragnars. Mín skoðun. Nú verður fróðlegt að fylgjast með hvað gerist í Kóreu, þetta eru kommúnistaríki vægt til orða tekið.
Sérstakur saksóknari verður að stíga varlega til jarðar. Hann verður að gæta að spilla ekki rannsókn með óviðeigandi upplýsingagjöf, ekki að ég haldi að hann geri það. Lögfræðingar sakborninga hafa sýnar efasemdir og það er kannski nóg. Kastljós-fólkið getur vonandi sýnt fram á að um opinber gögn er að ræða. Sigmar segir reyndar að hann hafi boðið nafngreindum aðilum að koma sinni hlið að, en því hafnað. Vonum það besta, þessa menn á að dæma, þeir breyttu rangt.
Jólafrí hafið og skólabörn fegin að vera laus. Þau njóta vonandi öll jólafrísins.
Kveð...Helga Dögg
»
19.12.2011 14:25:27 / Helga Dögg
Hvað ungur nemur sér gamall temur
Handboltinn hefur átt hug minn allan undanfarna daga. Heimsmeistarakeppni kvenna í Braselíu. Danir spiluð við Spánverja um bronsið og þeir síðarnefndu höfðu betur. Danir fara heim með fjórða sætið að launum. Norðmenn hins vegar sigruðu og er það vel. Lið þeirra er agað, duglegt og leikgleðin spillir ekki fyrir. Frakkar lágu í valnum. Margir Norðmenn voru á áhorfendapöllunum til að hvetja sínar konur.
Þá kom ákæra í Glitnismálinu. Vonandi leiðir hún til dóms fyrir þá sem um ræðir. Þarf að sýna þessu fólki að landinn lætur ekki allt yfir sig ganga með dómstólana í fararbroddi. Stjórnarmenn Lífeyrissjóðs Kópavogs reyna af veikum mætti að réttlæta gjörðir sínar. Sömuleiðis vona ég að það fólk verði dæmt. Sat í stjórn og tók ákvörðun. Nauðsynlegt að fólk átti sig á að stjórnarseta í fyrirtæki, félagasamtökum eða hvar sem er, er ekki bara ánægja og skemmtun, því fylgir ábyrgð. Nú eiga þeir sem tóku ákvörðun um að lána Kópavogsbæ úr lífeyrissjóðnum að sæta ábyrgð.
Veikindi hrjá marga þessa dagana, ég ekki undanskilin. Verst að komast ekki í skólann svona síðustu dagana, en um það fæ ég ekki ráðið, enginn vill veikt fólk til vinnu.
Kveð svona rétt fyrir jól...Helga Dögg
»
15.12.2011 13:01:35 / Helga Dögg
Gott að gleðja þá sem minna mega sín
Þvörusleikir mættur í bæinn og misjafnt hvað sá karl gaf börnum í skóinn. Sumir fengu pakka, aðrir ávexti og síðan sælgæti. Það er gaman að þessum sið en fólk verður að gæta hófs. Það er átakanlegt að heyra börn tala um stórar gjafir í skóinn. Siðurinn missir marks að mínu mati. Sjálf held ég að það geri börnum ekki gott að fá ofgnótt í skóinn. Biðla til gefenda, gætið hófs.
Um mig fer hrollur þegar ég hlusta á skýringar Kastljóss um aðdraganda hrunsins. Bankamenn eru frekar ósvífnir það er ljóst. Umfjöllun Jóhannesar er á mannamáli og skýrir hann atburðarásins vel. Hvílíkir svikahrappar og vel skipulagt allt saman. Menn hafa ekki á samviskunni að svíkja út fé almúgans og heimta meira. Hugsa sér að hérðasdómur skyldi dæma í Bónus-málinu þannig að refsing fellur niður. Hvað með öll þaum mál sem eftir koma og taka óheyrilegan tíma að rannsaka. Slæm þróun. Vona að Hæstiréttur dæmi öfugt. Kumpánarnir í Bónus vissi nákvæmlega hvað þeir gerðu og það er þeim ekki til málsbóta að hafa borgað sína skatta með álagi. Fussusvei svona fólk þarf að losa við úr samfélaginu.
Nú styttist í jólin, allir hlakka til og þar með talin ég. Rjúpurnar heilla sem borðaðar verða á aðfangadag. Læt mitt ekki eftir liggja við matarborðið það kvöld.
Kveð...Helga Dögg
»
11.12.2011 11:09:53 / Helga Dögg
Það kallast hyggindi að kunna að forgangsraða.
Ögmundi stefnt fyrir meiyrði í garð vélhjólasamtaka. Ekki þekki ég þessi samtök af öðru en slæmum fréttum, tengist allskonar glæpum á hinum Norðurlöndunum. Norskur þáttur um Vítisengla þar sýndi það, svo eftir þann þátt er ég ekki í vafa. Vera kann að meðlimir líti ekki á starfssemina sömu augum. Vera kann að meðlimir samtakanna hér á landi séu ekki eins harðskeyttir og þeir í Skandinavíu. Koma tímar kom ráð. Það verður án efa fylgst vel með dómsmálinu. Annað mótorhjólagengi hefur skotið rótum í þessu litla samfélagi. Sammála þeim sem segja að berjast þurfi gegn þessu með öllum tiltækum ráðum.
Fyrsti jólasveinninn mætir til byggð í nótt, Stekkjastaur. Kátir krakkar um allt land enda gefið í skóinn. Það er von mín að gefandanum beri gæfa til að vera hógvær. Spurningum barna er ekki auðsvarað þegar einn fær mandarínu og hinn geisladisk í skóinn. Á stundum hugsar gefandinn ekki rökrétt, hér á að vera um smá glaðning að ræða. Gaman að virkja börnin til að skrifa jólasveininum, búa til ljóð, sögu eða bara venjulegt sendibréf. Reynið það, vekur gleði á báða bóga.
Kveð á þriðja degi aðventunnar. Helga Dögg
»
07.12.2011 19:53:46 / Helga Dögg
Af vondu leðri gjörast ei góðir skór
Mér varð hugsað til málháttsins þegar umræða um svonefndan ,,Gillz" var sem háværust. Hvað fær ungt fólk til að þykja eitthvað til þessa manns eða skrifa hans koma. Hvaða konur heillast af svona mönnum, fyrir mér virka svona menn heimskir. Að geta sett það á prent sem þessi maður hefur gert er með ólíkinum, hrein óviðeigandi. Allar konur eiga að taka höndum saman og mótmæla slíkum málflutningi og sniðganga menn eins og hann. Og hvernig honum datt í hug að skrifa bók um það hvernig á að koma fram við konur. Konur vaknið...hugsið ykkur um.
Nauðgunarákæra er alvarlegt mál. Margir senda frá sér línu í tengslum við þau. Ekkert hefur heyrst frá mæðrum sem lenda í því að synir þeirra séu ranglega ákærðir fyrir nauðgun. Hef spjallað við fáeinar mæður sem eiga syni sem hafa lent í þessum ósköpum. Mannorð þeirra er í húfi, dómur ekki felldur, hvorki af eða á. Hvorugur aðilinn er vinningshafi og óvissan svífur yfir vötnum. Hryllingur að konur komist upp með að sverta mannorð manna á þennan hátt.
Fjárlögin samþykkt. Sama röflið í stjórnarandstöðunni. Þeir þurfa að brydda upp á einhverju nýju, klysjukenndur málflutningur. Við verðum að vinna á kreppunni, við þurfum að komast í gegnum ástandið. Með blóði, svita og tárum hvort sem okkur líkar betur eða verr.
Kveð, Helga Dögg
»
04.12.2011 22:59:38 / Helga Dögg
If you do what you always done, yoy‘ll get what you‘ve always gotten (Anthony Robbins). Svo rétt, ef fólk hjakkar í sama farinu þá verður allt við það sama. Breyta þarf um til að fara aðrar slóðir en venjulega. Ráðherraskipti á döfinni, þó fyrr hefði verið segi ég nú bara. Það má alveg skipta Jóni Bjarnasyni út svo og Ögmundi Jónassyni en varla verður það reyndin. Samfylkingarmaður þarf að fjúka með einum VG, annað varla samþykkt. Misgott orð fer að Birni Val og ekki allir jafn ánægðir ef hann verður skipaður ráðherra. Það er ekki annað að gera en bíða og sjá. Mjög svo skemmtilegt jólaboð var haldið á Dalvík í dag. Félagsmenn slysavarnadeildarinnar komu saman og borðuðu hangikjöt og laufabrauð. Magnús prestur fór með skemmtilega hugvekju áður en borðað var. Bingó spilað og gott spjall kvenna á milli. Alltaf gaman að hitta þessar konur. Margar þeirra muna tímana tvenna, hafa látið til sín taka í gengum árin, sjómönnum til heilla og á síðari árum Björgunarsveitinni. Ómissandi hlekkur í keðju. Vetrarharka er um þessar mundir og frostið fer niður í 11 gráður hér og þar. Jörð skalf hér á föstudag og fann frúin það greinilega. Ekkert alvarlegt en smá hristing. Alltaf hugsar fólk, nei það getur varla verið. Stelpurnar okkar spila um þessar mundir í HM. Gaman að fylgjast með þeim. Ríkissjónvarpið sér ekki sóma sinn í að sýna beint frá leikum í kvöld en þær spila á móti Angóla. Gengur ekki eins vel og ég vonaði, stefnir í tap. Nokkrar mínútur eftir og því engin ástæða til að afskrifa stelpurnar. Við hér á Fróni eigum góð landslið. Það er sem ég segi, nú sem fyrr, tíminn líður einfaldlega of hratt, mér fannst ekki svo langt síðan ég skrifaði en í millitíðinni er desember runninn upp með allri sinni dýrð. Jólaljósin spretta upp eins og gorkúlur hér og þar. Jólahátíðin nálgast hægt og hljótt allavega í mínu húsi. Kveð á afmælisdegi mínum, Helga Dögg
»
29.11.2011 20:36:25 / Helga Dögg
Rýr er heimaburðarbagginn Jón Bjarnason ráðherra, mér er orðavant. Hegðun hans og framkoma er landinu til skammar. Hann í skjóli stuðnings við ríkisstjórnina fer offari. Tímabært að setja hann af. Stuðningsmenn segja það sé vegna ESB. Hvað með fiskveiðistjórnunarkerfið sem átti að vinna, hvað gerði karlinn. Setur drög að frumvarpi á vefju ráðuneytisins og segir það vinnublað. Enginn í stjórninni veit nokkuð, ekki einu sinni samráðherrar. Hann og Ögmundur eru einskonar steingervingar á nýrri öld. Vona svo sannarlega að kjósendur gefi þeim rassskell í næstu kosningum ef þeir bjóða sig fram og taka Guðfríði Lilju með sér. Að hún skuli voga sér að koma í ræðustól með þeim gassagangi sem hún gerði. Hundleiðinlegt verður á Akureyri í dag. Norðanhríð og kuldi. Börnin inni í frímínútum í dag, þeim fyrstu. Síðan nutu þau útiverunnar eftir það. Kuldaboli ræður ríkjum hér á næstu dögum. Kuldagalli er gulls ígildi. Eins og sagt var í morgunútvarpinu, við látum okkur verða kalt vegna þess að við klæðum okkur ekki nógu vel. Það er nauðsynlegt að eiga góðan hlífðarfatnað. Áhugavert að heyra í Margréti Pálu í morgun. Hvergi er að finna lög um verndun heyrnar hjá börnum, bara fullorðnum. Valdís talmeinafræðingur hefur vakið fólk til umhugsunar um málið en því miður ekki þá sem eiga að hlusta. Matsalir grunnskóla eru jafn hávaðasamir og rokktónleikar. Ekki gott. Auðvitað verðum við að skoða málið og gera eitthvað við því. Kveð, Helga Dögg
»
26.11.2011 21:13:17 / Helga Dögg
Sumir gera heiminn sérstakan bara með því aðvera í honum.
Dagur Evrópskra sjúkraliða í dag. Sjálf hef ég ekki orðið neins var enda setið í Háskólanum í Reykjavík allan daginn. Ágætist fulltrúaráðsfundur. Margt lært og numið. Umræðan um að kalt sé á toppnum kemur af og til upp. Þeir sem þangað sækja vita af því, sumum líður vel þar, öðrum ekki. Eitt er víst þeir sem þangað sækja vita af kuldanum...eða er það ekki!
Norðanhríð framundan og að minnsta kosti þriðjungur þjóðarinnar haldin kvefi og leiðindapesti. Já ekki öðruvísi en vant er.
Ögmundur Jónasson, eins gott að segja ekki það sem mér býr í brjósti. Hef alla tíð haft á móti honum sem þingmanni og geri enn. Ég var því andvíg að hann héldi BSRB í gíslingu með að halda formannssætinu í 12 ár auk þess að vera þingmaður. Svona er það, okkur fellur ekki störf allra í geð.
Fyrsti sunnudagur í aðventu á morgun, tíminn flýgur svo um munar. Á mánudag er Kompás námskeið og hlakka ég til. Síðasti dagurinn og þá má ég kenna eftir námsefninu. Alltaf að læra enda gaman að því.
Kveð...Helga Dögg
»
22.11.2011 19:43:37 / Helga Dögg
,,There’salways ongoing dialogue reflecting back to what’s happened previously, how youdid, who was involved and hopefully best way forward.“ />
Margt á döfinni. Fulltrúaráðsfundur Landsbjargar framundan og verður áhugavert að vera þar. Sjá og heyra það sem verið er að ræða. Formaður slysavarnadeildarinnar fer með atkvæðið. Stjórnin vinnur undirmönnuð það á að ræða á þessum fundi sem dæmi. Unglingastarfið og fleira og fleira. Af nógu er að taka í þessum félagsskap. Námskeið í Kompás næstu daga, hrikalega skemmtilegt um mannréttindi.
Pétur Blöndal hefur margt til síns máls og allof fáir hlusta á það sem hann segir. Lengi hefur hann talað fyrir 10% skatti og BSRB eyddi stórfé í að kanna hvernig það kæmi út. Verkfallssjóður var látinn greiða kostnaðinn og þáverandi hagfræðingur bandalagsins vann nótt sem nýtan dag við útreikninga. Og ekkert varð úr. Vinnu og peningum sóað. Pétur lofaði Hönnu Birnu og ekki að ósekju, hún er frambærilega þó ég sé á öndverðum meiði í ESB. Landinn á að klára viðræðurnar, sjá hvað við fáum og um hvað við eigum að kjósa. Ef við kjósum nú er það svipað og ef karli og konu væri stillt upp í forsetaembættið og lýðurinn kýs, fær bara að vita eftirá hverjir einstaklingarnir eru.
Snjókorn fallin. Jörðin hvít hér norðan heiða. Vonandi bara í dag eða svo. Góðu vön.
Veit ekki hvort það sé réttlætanlegt að taka á móti íslenskum föngum sem dæmdir eru erlendis og vilja heim. Þeir gera það í von um vægari dóm og betri meðferð. Í upphafi skyldi endann skoða.
Fréttiraf fíkniefnafundi er tíður. Hundur þefar uppi eitrið. Löggan rennur á lyktina og svo framvegis. Gott að efnin finnist þannig að minna fari í hendur neytenda.
Og talandi um neytendur, fiskframleiðendur plata okkur heldur betur. Fiskurinn rýrnar, við borgum fyrir vatn og hrím og umbúðir. Já við eru grandalaus gagnvart söluaðilum.
> >Hilsen...HelgaDögg
»
20.11.2011 21:26:46 / Helga Dögg
,,Whenyou reflect in the past, you bring it back to the present, youare able to add your new knowledge from the present and take it forwards." Hanna Birna náði ekki formannssætinu af Bjarna, því miður. Hún er góður skipstjóri í þessa brú. Vonandi gefst hún ekki upp og gerir aðra tilraun að tveimur árum liðnum. Mér leist vel á atkvæðagreiðsluna um ESB, Sjálfstæðismenn vilja fresta viðræðum, ekki hætta við eins og Bjarni Ben. hefur haldið fram. Hann talar ekki fyrir hönd þeirra þegar hann segir svo, sem betur fer að mínu mati. Davíð Oddsson var hvassur að vanda og vandaði ekki vinstri mönnum kveðjuna. Sama með Geir, og það ekki að ósekju, illa vegið að honum. Annars tíðindalítið þing...eða hvað!
Galdrakarlinn í Oz heillaði unga sem aldna í Borgarleikhúsinu. Mitt fólk var afar ánægt með sýninguna. Á köflum varð sá minni hræddur en það stóð ekki lengi.
Áhugaverður þáttur um Thor Jensen, danskur í þokkabót. Aðeins er komið inná útrásarvíkinginn í afkomanda hans.
Veðurblíðan er með eindæmum. Ekki snjókorn milli Akureyrar og Reykjavíkur og svona veðurfar styttir veturinn í það minnsta er tilfinningin sú. Ávallt er sami dagafjöldinn á ári.
Sammála þeim sem koma að slysum, ökum hægar. Slysavarnir felast í að allir hugi að sjálfum sér, því fólk er jafn mikið slasað eða látið hvort sem það er í rétti eða órétti. Það skiptir engu og því ber okkur að huga að eigin ökulagi, því getum við breytt ekki hinna.
Læt þetta duga að sinni...Helga Dögg
»
17.11.2011 14:23:39 / Helga Dögg
The beginning is the most important part of the work (Plato). Sorg ríkir á Siglufirði og ekki að ástæðulausu. Hörmulegt slys átti sér stað. Góð vísa er aldrei of oft kveðin um að fara ekki út á götu fyrr en bíl sem fólk fer úr sé farinn. Veit ekki hvort þetta er raunin með þessar ungu stúlkur en allt bendir til þess. Bílstjórinn á ekki sjö dagana sæla, nokkuð ljóst. Mikill slagur í uppsiglingu hjá formannsefnum Sjálfstæðisflokknum. Vonandi hefur Hanna Birna það, þó það í sjálfu sér skipti mig engu máli hvort þeirra vinnur. Held að Hanna Birna geti lyft flokknum upp á hærra plan. Mér finnst skynsamlegt af þeim að fara ekki í kappræður, hvað skila þær svo sem. Ekki gott að segja. Annir eins og fyrri daginn. Færslur stopular. Fylgist með Evrópumálunum. Mér blöskraði nú skýrsla hagfræðinga Bændasamtakanna, halda þeir virkilega að þeir séu hlutlaustir. Samtök sem berjast af alefli gegn inngönu inn í ESB. Mér finnst peningum illa varið í svona rannsóknir þegar hlutlaus aðili fer ekki með rannsóknina. Danir fara ekki varhluta af kreppunni, frekar en aðrar þjóðir. Stjórnvöld þar í landi berjast nú við að finna tekjulindir...skattheimtu af fólki, rétt eins og hér á landi. Þjóðir heims eiga í vanda um það verður ekki deilt, heldur leiðir til að beisla hann. Fór á fyrirlestur hjá Kristjáni sálfræðingi, ágætist fyrirlestur, nema...einn þátttakandinn eyðilagði megnið af honum. Því miður gripu þeir ekki inní sem sáum um þetta, hinum til ama. Umræðuefni þátttakandans var ekki viðeigandi á þessari stundu og alls ekki við þann aðila sem umræðunni var bent til. Hundleiðinlegt þegar fólk lætur svona og sjálfhverft svo um munar. Blíðan léttir lund margra, ekki spurning. Við vonum að snjórinn haldi aftur af sér í nokkrar vikur. Aðfangadagur jóla er tilvalinn dagur til að láta sjá sig...en mér verður nú sennilega ekki að ósk minn. Kveð...Helga Dögg
»
12.11.2011 16:55:59 / Helga Dögg
Dugnaður,hjálpsemi og hugrekki eru ekki dygðir nema þær stuðli sannarlega að því að bætalífið og skapa vænlegri lífsskilyrði á jörðinni. /> Sorglegt að Svíinn fannst ekki á lífi, en gleði að hann skyldi finnast. Það er fjölskyldunni dýrmætt. Björgunarsveitir landsins eiga þakkir skildar, dugnaðarfólk sem skipa þessar sveitir. Leitin að manninum hefur staðið yfir síðan á miðvikudag og gífurleg reynsla að leita við þær aðstæður sem sköðuðust. Samkvæmt sænskum blöðum eru foreldrar mannsins komnir til landsins en bróðir hans kom í gær. Nú þegar áramót nálgast hugsa margir til flugeldasölunnar sem björgunarsveitir afla fjár. Það er von mín að til þeirra verði hugsað á þeim tímamótum í meira mæli en áður. Þorláksbúð við Skálholt er byggð upp í andstöðu við forleifafræðinga eftir því sem ég kemst næst. Þingmaðurinn Árni Johnsen hefur farið offari og ekki fengið tilskilin leyfi í tíma, mörg eftirá eins og sagt er. Merkilegt hvað þessi þingmaður kemst upp með. Ég undrast enn að kjósendur á Suðurlandi hafi kosið hann á þing, þrátt fyrir brot hans og lygar. Slagur Hönnu Birnu og Bjarna Ben. harðnar sennilega þegar líður á vikuna, ef það verður slagur. Þau virðast ætla að hafa hljótt um sig í fjölmiðlum. Því ber kannski að fagna, því mér sýnist Bjarni ekki geta haldið sig á málefnanlegum grunni. Hanna Birna er betur til þess fallin. Það verður spennandi að fylgjast með kosningum í Sjálfstæðisflokknum um næstu helgi. Mér hugnast Hanna Birna, hún er frambærilegri á allan hátt. Nóvember hálfnaður, hér um bil, og margir hafa sett upp jólaljós. Sumum finnst þetta of snemmt á meðan aðrir njóta þess bara. Hver hefur sinn sið í jólamálunum eins og öðrum. Kveð...Helga Dögg
»
Síður: 1 2 3 ... 107
|
|